Ingþór skrifar
Síður á Patró
25.12.2008 22:25:27 / superman

Jóla-hvað !!!!

Viljum óska ykkur öllum gleðilegra jóla, gott og farsælt komandi ár.
  Með þökk fyrir það liðna.
Lofa að koma sterkur inn í blogginu á komandi ári .  (reyni allavega . . . . )

                          Jólakveðjur Guðm. Ingþór og Anna María


p.s.  kagginn (mazdan) er seld. Sorry. ..  .. . ;)      

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.10.2008 14:21:27 / superman

Bíll ekki til sölu, en kaggi til sölu.

Já hef ekki verið duglegur að skrifa hingað inn enda nóg að gerast í vinnunni sem og heima fyrir. Anna búin að kaupa stofu og erum við að koma henni í gott ástand þannig hún geti farið að vinna aftur sem fótaaðgerðafræðingur. Vonanst til að það fari nú langt um helgina, verð reyndar lítið heima um helgina mun reyna hvað ég get gert.

Annars er Anna að reyna að selja kaggann sinn því við höfum lítið að gera með 2 bíla þar sem ég er með vinnubíl. Þetta er Mazda M3 og er hann 2005 módel, keyrður 49 þús og er beinskiptur og rauður að lit. Það er sett á hann 1.690.000 kr en við skoðum öll tilboð. Ekkert lán er á honum þannig það stendur ekki til boða að yfirtaka svoleiðis. En hafið bara samband ef þið viljið skoða þenna frábæra bíl.

Anna María - 896 0101
Ingþór         - 863 8181


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 14:59:57 / superman

Er á lífi

Jæja gott fólk er ekki komið tími til að blogga eitthvað smá. Eins og ég sagði hérna síðast á síðunni þá er ég fluttur á Akranes og er að vinna sem forstöðumaður Kópavogsvallar en mitt verk er að sjá um alla knattspyrnuvelli í Kópavogi (grasvelli). Ég tók þetta verkefni að mér eftir að Ómar Stef ákvað að taka sér námsleyfi til áramóta. Ég fer frá Akranesi á hverjum morgni og heim aftur seinnipartinn og er þetta bara fínasta vinna.

Ég sem að taldi mig vera alveg hættan í löggunni þá er það kannski alveg svo "gott" en ég hef nú þegar tekið eina vakt í löggunni á Akranesi og var það bara alveg ágætt, reyndar erfitt að halda sér vakandi (en vaktin var til 05:00, ég er vanur að fara að sofa ekki seinna en 23:00), en vaktin gekk vel fyrir sig eins og von var náttúrlega.

Annars er lífið að ganga alveg meiriháttar bara, næstum of gott held ég, en ég vill nú líka taka það farm að það er nú allt henni Önnu Maríu að þakka því hún er svo dugleg að stjana við rassgatið á mér :haha: ekki finnst mér það leiðinlegt.

Annars erum við að fara á tónleika til minningar um Villa Vill og svo 2 í leikhús og út að borða og ég veit ekki hvað og hvað. En gaman að heyra í ykkur sem að nenna að kommenta hingað inn. Kalli ég skila kveðju og þú ert nú sjálfur að standa þig vel þarna fyrir austan, alltaf hægt að notast við mann eins og þig.

Kveð í bíli.

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.08.2008 16:13:29 / superman

Fluttur á Akranes

Jæja gott fólk þá er kallinn fluttur á Akranes og við Anna byrjuð að búa saman, Sambúðin hefur bara gengið vel fyrir sig, enda ekki búið að reyna mikið á það ennþá en lítur vel út. Ég byrjaði í nýju vinnunni á föstudag og var það bara mjög gaman en ég er að fara að leysa félaga minn af, hann Ómar Stefánsson, sem yfirmaður knattspyrnuvalla í Kópavogi.

Ferðin suður gekk vel fyrir sig, ég stoppaði eina nótt í Fjarðarhorni og gisti þar en fjölskyldan var öll þar í veiði og fékk ég auðvitað að borða hjá þeim og hafði það gott og lagði svo af stað suður á Akranes á fimmtudagsmorguninn. Ég lenti reyndar í því að það sprakk hjá mér (ég hélt að það gæti ekki sprungið á Toyotu, en það getur víst allt gerst). En allt gekk vel og ég komst á leiðarenda. Allt ennþá í drasli hjá okkur Önnu en ég kom náttúrlega með allt með mér og það gengur ágætlega að taka uppúr kössum en alltof mikið dót.

Annars vill ég bara segja að ég vill þakka öllum þeim sem að hafa sagt falleg orð í minn garð og mun ég verulega sakna fólksins á sunnanverðum Vestfjörðum en þarna er á ferðinni eðalfólk. Einnig mun ég auðvitað sakna íþróttastarfsins og bæjarstjórn en þetta eru mjög skemmtilegir málaflokkar sem að mikið er að gera í þó svo það sé ekki vel launað (sumt ekkert launað) og oft lítið um þakklæti en þetta gefur af sér á annan veg.

Vona bara að fólkið á svæðinu verði duglegt að halda áfram að stunda íþróttir, alveg sama hvaða íþróttir það eru bara að hreyfa sig og svo efast ég nú ekki um að það verði einnig duglegt að tala um pólitíkina, því það er nú ekki leiðinlegt að hafa skoðun á öllum hlutum og rökræða það aðeins (rífast).

En komið gott í bili, verðum í bandi.


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 20:07:11 / superman

Búið að selja ísskápinn

jájá það er búið að selja ísskápinn þannig það er bara nánast allt farið hjá kallinum. Ég vill bara þakka ykkur fyrir alla aðstoðina.    

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 20:00:29 / superman

Þvottavélin farin en ísskápurinn eftir

Jæja gott fólk núna er þvottavélin farin og búið að finna nýtt heimili fyrir hana og fór hún á gott heimili þannig það er nú gott mál en þá er komið að ykkur að aðstoða mig við að finna gott heimili fyrir ísskápinn því annars verður hann bara settur í geymslu eða þarf að flytja hann með á Akranes.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 14:09:09 / superman

jæja þá styttist verulega í að kallinn fari að flytja frá Patró

já því miður er komið að þeim tímapunkti í mínu lífi að ég er að fara að flytja. Ég mun fara héðan með söknuði en mér þykir gríðarlega vænt um þennan stað. Hérna er fólkið allt alveg meiriháttar og á ekkert nema gott skilið.

En ég er að fara að flytja á Akranes eins og flestir ættu að vita en ég er að fara að hefja nýtt tímabil á minni ævi og fara að búa með Önnu Maríu. Ég get nú ekki sagt annað en að mig er farið að hlakka til að fara til hennar en einnig mun ég auðvitað sakna Patreksfjarðar og allra íbúanna hérna.

En þar sem ég er að fara að flytja þá ætla ég að reyna að selja nokkra hluti sem ég á og eru það eftirfarandi:
Whirpool - Ísskápur nýlegur   20.000 kr
Whirpool - Þvottavél nýleg     25.000 kr

Ef þið vitið um einhvern sem að vantar þessa hluti endilega segið þeim að hafa samband og þá geta þeir komið og skoðað þá. En ég mun fara suður í vikunni þannig ef það er einhver sem að hefur áhuga þá er um að gera að fara að drífa sig og kíkja á hlutina.
Með kveðju
Guðm. Ingþór - 863 8181

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 23:13:29 / superman

Veit ekki alveg hvort að maður eigi að reyna að afsaka sig

Já það er nú bara þannig þó maður hafi nægan tíma þá nennir maður ekki að blogga en hérna kemur smá.
Síðasta sparkvallamót sumarsins verður á morgun miðvikudag, mótið átti að vera á fimmtudag en því var flítt sökum sirkus sem verður hérna á fimmtudag. Mótið hefst kl 17, á morgun og er það von mín að sem flestir láti sjá sig á mótinu. Við ætlum að grilla í lok mótsins en þetta er síðasta mót sumarsins hérna á svæðinu.

Ég er loksins búinn að fá laununar bréfið í hendurnar frá lögreglustjórnanum á Vestfjörðum en ég fékk það í hendurnar 17 júli en ég lauk störfum 1 júlí og það magnaðast er í þessu að bréfið var gefið út 7 apríl af Ríkislögrelustjóra. Þannig það tók rúma 3 mánuði að fara frá Reykjavík til Ísafjarðar og svo þaðan alla leið til Patrekfjarðar. Ég skil þetta alveg enda ekki alltaf auðvelt að fara þessa leið en vandamálið er að okkar ágæti lögreglustjóri tilkynnti okkur við sameiningu að samgöngur væru ekki vandamál þannig þetta kannski skýrir okkar (lögreglumannana á svæðinu) mál aðeins betur.

Unglingalandsmótið verður um verslunarmannahelgina en það verður haldið í Þorlákshöfn og eru skráningar byrjaðar að koma inn og er það von mín að sem flestir mæti einnig á það mót og sýni nú hvað við getum í íþróttum.

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 14:26:53 / superman

Já ekki búinn að vera duglegur

Já svona er þetta, sumarið er tíminn þegar maður er ekki duglegur að skrifa hingað inn, enda nóg annað að gera, eins og að leika sér :haha:
Meistaramót GP er búið og sigruðu Skjöldur og Björg það mót og eru klúbbmeistarar GP, til hamingju með það. Fór á Grundarfjörð um helgina og Anna kom þangað einnig og var þetta mikil afslöppun þessi helgi, ja nema á sunnudag þegar ég var að fara, þá var ég settur í það að rífa upp tré eða runna á fullu og auðvitað tók Anna þátt í því með mér ásamt systrunum.

Kom svo vestur aftur í gær með dallinum og ætlaði að vera duglegur þessa vikuna að mála en neinei allt kom fyrir ekki, það er rigning núna þannig það er ekki mikið málað í henni. En það má gera ýmislegt annað, eins og að gera allt annað klárt fyrir málinguna.

Vestfjarðarmót í frjálsum á laugadaginn nk. á Bíldudal. Segi kannski frá því þegar nær dregur. En er farinn út til að gera eitthvað í málaravinnunni.    

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2008 20:10:42 / superman

ÍH héraðsmeistari 2008

Já héraðsmótið var að klárast og vann ÍH héraðsbikarinn með nokkrum yfirburðum og eru þau vel að titlinum komin. Skráðir þátttakendur voru 141 og er það alveg ágætt en samt verður að viðurkennast að það vantaði slatta af keppendum eins og hjá UMFT var ekki ein konaí 17 ára og eldri og einungis 1 í 17 ára og eldri karla.

En það má auðvitað ekki taka af Herði að þau unnu þetta með miklum yfirburðum og þar af leiðandi tapaði UMFT bikarnum yfir til Harðar.

Gummi Ingi bætti héraðsmetið sitt í hástökki og stökk 1,82. En á síðasta unglingamóti þá stökk hann 1,80 og er því að koma gríðarlega sterkur inn í sumarið og verður gaman að sjá hann keppa á unglingalandsmótinu og sjá hann keppa við aðra keppendur frá öðrum landshornum og sjá hvort að hann sé ekki bara einn af þeim bestu í sínum greinum, ef ekki sá besti. En síðustu ár hefur hann verið að standa sig gríðarlega vel á mótum fyrir utan svæðið og því gaman að sjá hvað gerist á landsmótinu.

Gummi var einnig valinn frjálsíþróttamaður HHF 2007, Pálmi Snær körfuknattleiksmaður HHF, Kristján Þórsson knattspyrnumaður HHF og Sandra Lind Bjarnadóttir sundmaður HHF fyrir 2007. Að lokum var svo Guðmundur Ingi valinn íþróttamaður HHF 2007 og er hann vel að titlinum kominn enda búinn að standa sig gríðarlega vel á síðasta ári og hefur ekki slakað á þetta árið og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni sem og mörgum öðrum sem að voru að keppa á mótinu.

Annars er ég bara búinn að vera að vinna alla helgina í þessu móti og búið að vera mikið að gera, lítið sofið en það verður bætt upp í nótt.

Ekki má gleyma að Daníel Galvez er í heimsókn hjá kallinum og er mjög ánægjulegt að hafa hann hjá mér og ekki verra að hann hjálpaði mér gríðarlega um helgina.

Írskir dagar voru á Akranesi og ég komst náttúrlega ekki, enda héraðsmót í gangi. Anna María fór náttúrlega á ballið í gær með sálinni en einnig fór hún í afmæli hjá mági mínum, honum Sigurði Halldóri manninum hennar Svövu systir. ÉG gat ekki heyrt annað en að það hafi verið mikið grín hjá þeim í gær og er það nú bara glæsilegt. Hettý fór fyrir mína hönd á Skagann og sá um að skemmta sér með Önnu og á ég eftir að fá allar sögurnar eftir helgina þegar að hún kemur.


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 20:35:29 / superman

Sól og blíða á Patró

Það er bara búið að vera frábært veður í allt sumar og ekki ringt dropa í öllum júní mánuði (reyndar ekki gott fyrir golfvöllinn). Ég hef náttúrlega verið að vinna fyrir HHF í sumar og gengið bara ágætlega að ég tel. Ég var reyndar núna að taka að mér að mála eitt hús og ætla mér að gera það núna í sumar en það er í Urðargötunni. Ég ætla semsagt að mála þakið, glugga og húsið sjálft. Búinn að vera að skrapa yfir helgina og helt því áfram í dag sem og það var ákveðinn litur á húsið í dag.

Er búinn að vera að drepast í bakinu síðustu daga en það hlítur að fara að lagast, trúi ekki öðru. Héraðsmót HHF verður næstu helgi á Bíldudal og von mín að sem flestir sjái sér fært að mæta, annað hvort til að keppa eða þá til að hvetja þá sem að eru að keppa.

Mikið að gerast hjá lögreglunni á Patró en það er búið að auglýsa 2 stöður til viðbótar sem að þýðir að núna eru lausar 3 stöður lögreglumanna hjá embættinu. Þannig staðan er þessi, 1 aðstoðaryfirlögregluþjónn, 1 lögreglumaður og svo 3 lausarstöður og svo þessi eini sem er ennþá starfandi hjá lögreglunni er í veikindarfríi þannig staðan er þannig í dag að enginn menntaður lögreglumaður er starfandi hjá lögreglunni (fastráðinn, reyndar eru hérna lögreglumenn í sumar sem eru að leysa af, sem betur fer).

Það er nú von mín að lögreglustjórinn nái að ráða hingað menntaðamenn en því miður er það að koma á daginn sem að ég hef ætíð sagt að hingað verður erfitt að fá menn ef þeir sjá fram á að geta ekki klifrað upp metorðastigann, því það hlítur að vera metnaður hvers manns að klifra upp stigann og fá hærri laun og takast á við meiri ábyrgð í starfi. En eftir að lögreglan var sameinuð ísfirðingum þá voru allar yfirmannsstöður (fyrir utan aðstoðaryfirlögregluþjóns stöðuna) lagðar af.

En svona er lífið í dag, vonandi lagast þetta allt þegar líður að vetri.    

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2008 01:08:26 / superman

Gekk ekki neitt alltof vel á Bíldudal ENNNNNNNN

já það gekk ekki neitt alltof vel á Bíldudal, samt er ég með mjög góðar fréttir hehehe, kallinn er kominn með nýja forgjöf í golfinu. Málið er að þeir hjá GSÍ voru ekki alveg að standa sig en núna er þetta allt komið eins og það á að vera og eftir að búið er að skrá allt uppá nýtt þá er ég kominn niður í 22,9 í forgjöf :d   :haha:  er bara alveg að springa úr stolti yfir sjálfum mér.

Ég var búinn að setja mér markmið fyrir sumarið og það var að komast niður í 24-20 í forgjöf og það markmið er bara komið og það er bara júní ennþá. Ég er mjög ánæður en reyndar geri ég mér alveg grein fyrir að ég hef verið að spila mjög vel og það má svosem ekki mikið klikka til að ég hækki aftur en maður á að vera ánægður meðan maður getur og ég er sko það.

Ég var svo að skoða þessa mótaröð sem ég hef verið að taka þátt í, Kemimótaröðin, en þar er ég kominn með, eftir 4 mót, 80 punkta og tel ég það mjög jákvætt, er allavega með 15 punktum meira en Björg :haha:  en það má ekki gleyma samt því að hún er búin að vera mjög dugleg að draga mig í golf með sér og hjálpa mér að lækka forgjöfina en einnig að keppa við mig og þannig hvetja mig til að standa mig ennþá betur. En allavega kominn niður í 22,9 í forgjöf.    

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 13:35:57 / superman

Mikið um að vera á Patró

Já ég hef voðalega lítið nennt að blogga og er það nú kannski ekki skrítið þar sem það er búið að vera svo frábært veður hérna fyrir vestan í sumar að maður bara hefur annað að gera en að vera að blogga.

Ég er reyndar ansi mikið fyrir fram tölvuna en það er til að vinna fyrir HHF eða bæjarbatteríið. Svo hef ég verið nokkuð duglegur að fara í golf enda er það nú ekki neitt lítið skemmtilegt. Hef verið að standa mig bara nokkuð vel og verð bara að segja að ég er mjög sáttur með það sem komið er og vonandi held ég áfram á þessari braut því þá er það bara kaupþingsmótaröðin eftir 2 ár og svo út í heim eftir 4 ár.
Svo er fólk að halda því fram að ég hafi ekki framtíðarplön :$  

En já það var sparkvallamót í gær og var það haldið á Barðastönd og gekk alveg glimrandi vel fyrir sig og mikið af krökkum sem að mættu. Það var alveg meiri háttar veður, sól og blíða og allir sáttir held eg bara.

Svo í morgun fór ég á Bíldudal að spila völlinn þar og svo á eftir er golfmót þar og ætla ég að Björg að mæta þar til leiks og sjá hvort að eitthvað gangi hjá okkur. Ég var reyndar að spila MJÖG illa en hvað með það, það var sól og blíða þannig ég nýt þess bara í staðinn og fæ smá lit á mig.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 11:08:53 / superman

Lögreglumenn ánægðir í sínu starfi.....

Já ég bara varð að setja þetta hérna inn því það er ekki á hverjum degi sem að yfirlögregluþjónninn á Vestfjörðum er með grín í fjölmiðlum. Þessi frétt er frá Bæjarins Besta á Ísafirði. Ég læt alla fréttina koma:

Mannekla er hjá lögreglunni á Vestfjörðum eins og í mörgum öðrum embættum á landinu. Önundur Jónsson yfirlögregluþjónn segir að helst vanti nú skólagengna afleysingamenn. Þá hefur launafulltrúi lögreglunnar látið af störfum og ekki hefur tekist að þjálfa annan í staðinn og hafa þau verkefni því færst á herðar yfirlögregluþjónsins. „Það verður einhver að taka þessi verkefni að sér. Við erum í reddingum úti um allan bæ og úti um allt land. Við fáum í næsta mánuði fjóra lögreglumenn annars staðar að af landinu í eina og upp í fimm vikur. Annars er sama ástandið um allt land“, segir Önundur. Á Patreksfirði eru tveir skólagengnir og tveir óskólagengnir lögreglumenn og þar, sem og á Hólmavík, vantar mannskap. „Þetta er sama ástandið um allt land og kannski ekkert frekar hjá lögreglunni en öðrum. Það vantar að fá þessa lögreglumenn til að fara út á land, og ekki eru allir þeir sem útskrifast að skila sér til vinnu.“

Önundur segir starf lögreglumannsins skemmtilegt og gefandi. „Ég get hiklaust mælt með þessu starfi, það er ekki spurning. Okkar lögreglumenn eru ánægðir í sínu starfi, sem er bæði erfitt og gefandi. Þetta gengur ekki bara út á það að handtaka menn, það er mikið um að lögreglan sé að hjálpa fólki við ýmislegt. Fólk er yfirleitt þakklátt og jákvætt í okkar garð. Það er bara í undantekningatilfellum sem eru einhver leiðindi, sem rata þá í blöðin. En við tökum það ekki nærri okkur því við vitum betur hvernig starfið er.“


Eins og þið sjáið þá segir Önundur að lögreglumenn séu ánægðir í starfi... núna er ég ekki alveg að skilja um hvað hann er að tala. Veit ekki annað en að 2 starfsmenn á Patró hafi sagt upp störfum vegna óánægju í starfi og sérstaklega samstarfi við yfirstjórnina. Svo má ekki gleyma að starfsmannavelta á Ísafirði síðustu 15 árin er ROSALEG. Afhverju hætta menn sem eru svona ánægðir í starfi???? ÉG bara vildi koma með eitthvað frá mér þegar menn koma með svona grín.        

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 12:14:19 / superman

ANNA MARÍA að fara í dag

Já Anna María er að fara suður í dag en hún er búin að vera hjá mér í viku og er sá tími búinn að vera alveg frábær. Ég veit svosem ekki hvort að hún sé búin að vera eins sátt eins og ég, enda er ég búinn að vera með hugan við unglingamótið alla vikuna. Hún hjálpaði mér reyndar með því að stjórna sjoppunni á mótinu og greinilegt að hún kann þetta allt saman því hún nánast kláraði allt sem að ég hafði keypt inn, sem er bara jákvætt enda fær HHF ágóðan.

Kallinn á svo afmæli í dag, og árin að hellast yfir mann. Reyndar hefur ég náttúrlega aldrei litið betur út, allavega segir MAMMA það og ekki lýgur hún. ÉG vill einnig óska Óla Þór til hamingju með daginn en sá mæti og myndarlegi maður á einnig afmæli í dag.
Svo átti hún Eyrún mín afmæli í gær og vill ég einnig óska henni til hamingju með það.

Unglingamótið gekk bara vel fyrir sig að ég tel og bara allir nokkuð sáttir við það.    Eftir 2 vikur þá verður héraðsmótið og vona ég að það gangi eins vel fyrir sig og þetta mót.            

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 25
Heimsóknir
Í dag:  20  Alls: 98659
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1240 dögum
Tónleikar í Þýskalandi